Fara í aðalefni

Einstök sigling um Suður-Karíbahaf 26.11.-7.12.26

Tímalengd: 12 Dagur/dagar , 11 nótt/nætur

Lýsing pakka

Einstök sigling um suðurhluta Karíbahafsins Miami, Aruba, Bonaire, Curaçao

Vertu með í ógleymanlegri siglingu um suðurhluta Karíbahafsins um borð í hinu glæsilega Celebrity Xcel. Ferðin hefst með tveggja nátta dvöl í Miami áður en stigið er um borð og siglt til ABC-eyjanna Aruba, Bonaire og Curaçao. Celebrity Xcel fór í sína fyrstu siglingu árið 2025 og sameinar nútímalega hönnun, fjölbreytta afþreyingu og vandaða veitingastaði. Um borð er meðal annars hægt að njóta útsýnisins frá Magic Carpet, slaka á við sundlaugina, skoða The Bazaar og horfa á glæsilegar sýningar í The Theatre.

Gréta S. Guðjónsdóttir

fararstjóri

Gréta Guðjónsdóttir er sannkölluð fjallageit og flakkari. Þegar hún er ekki að leiða hópa um hálendi Íslands ferðast hún um fjarlæg horn heimsins eða nýtur lífsins í siglingum um Miðjarðarhafið, yfir Atlantshafið og um Karíbahafið. Gréta er ljósmyndari að mennt og áhugi hennar á ljósmyndun hefur leitt hana víða, meðal annars um Lombok í Indónesíu, fáfarna staði í Mexíkó og víða um Indókína og Afríku.

Innifalið í verði

  • Flug með Icelandair til og frá Miami
  • Rútuferðir á milli flugvallar, hótels og skips samkvæmt dagskrá
  • Tvær nætur á hóteli í Miami með morgunverði fyrir siglingu
  • Fullt fæði um borð, morgunverður, hádegisverður og kvöldverður á aðalveitingastöðum skipsins
  • Vatn, kaffi og te með morgunverði og á völdum sjálfsafgreiðslustöðum
  • Dagleg þjónustugjöld til starfsfólks vegna þrifa og þjónustu í matsölum
  • Skattar og hafnargjöld

Hvað er ekki innifalið?

  • Áfengir og óáfengir drykkir aðrir en þeir sem eru sérstaklega tilgreindir. Hægt er að kaupa drykkjarpakka um borð
  • Sérlagaðir kaffidrykkir, svo sem espresso og aðrir kaffidrykkir á börum og kaffihúsum skipsins
  • Skoðunarferðir á landi á Aruba, Bonaire og Curaçao
  • 20% þjónustugjald sem bætist við kaup á drykkjum, þjónustu á heilsulind og máltíðum á sérveitingastöðum

Ferðalýsing

Celebrity Xcel er glæsilegt skip í Edge-línu Celebrity Cruises og fór í sína fyrstu siglingu árið 2025. Siglt er frá Miami til ABC-eyjanna Aruba, Bonaire og Curaçao í suðurhluta Karíbahafsins. Fyrir siglingu er gist í tvær nætur í Miami.

Um borð er fjölbreytt úrval veitingastaða, afþreyingar og svæða til slökunar. Magic Carpet færist á milli þilfara utan á skipshliðinni og býður upp á einstakt útsýni. Einnig má nefna The Bazaar, Celebrity Pool Club, Grand Plaza og The Theatre.

Helstu áfangastaðir ferðarinnar

Miami, upphaf ferðarinnar

Við hefjum ferðina í Miami með tveggja nátta dvöl áður en stigið er um borð. Hér gefst tími til að njóta sólríks veðurs og kynnast þessari líflegu borg áður en siglingin hefst.

Aruba

Aruba er þekkt fyrir sólríkt veður, fallegar strendur og ljósan sand. Hér er hægt að slaka á við sjóinn eða fara í skoðunarferð um eyjuna.

Bonaire

Bonaire er þekkt fyrir köfun og snorklun enda eru falleg kóralrif allt í kringum eyjuna. Náttúruvernd skipar stóran sess og eyjan hentar vel þeim sem vilja njóta friðsæls umhverfis og fjölbreytts lífríkis.

Curaçao

Curaçao er litrík Karíbahafseyja með fallegar strendur og ríka sögu. Þar mætast evrópsk og karabísk áhrif og skapa einstakt andrúmsloft.

Gisting

Hótel í Miami

Gist er í tvær nætur á hóteli í Miami fyrir siglingu. Morgunverður er innifalinn.

Celebrity Xcel, glæsilegt skemmtiferðaskip

Celebrity Xcel er nútímalegt skemmtiferðaskip sem fór í sína fyrstu siglingu árið 2025. Um borð er boðið upp á fullt fæði á aðalveitingastöðum, fjölbreytta afþreyingu og glæsilega aðstöðu. Klefarnir eru nútímalegir og hannaðir með þægindi farþega að leiðarljósi.

Gistivalkostir um borð

Við bjóðum upp á tvær gerðir af klefum í þessari ferð. Í báðum flokkum er lögð áhersla á nútímalega hönnun og þægindi.

Gluggaklefi, Ocean View

Þessi klefategund er staðsett á þilfari 3. Klefinn er með stórum glugga sem veitir útsýni yfir hafið og hleypir náttúrulegri birtu inn.

  • Rúm með Celebrity Cashmere-dýnu
  • Athugið að greiða þarf sérstaklega fyrir drykki úr minibar og aðra aukaþjónustu

Svalaklefi, Infinite Veranda

Þessi klefategund er staðsett á þilfari 6. Klefinn er með glugga frá gólfi til lofts sem hægt er að opna að hluta með einum takka. Þannig verður svalasvæðið hluti af klefanum.

  • Nútímaleg hönnun sem nýtir rýmið vel og færir farþega nær hafinu
  • Vandaðar innréttingar og góður búnaður
  • Athugið að greiða þarf sérstaklega fyrir drykki úr minibar og aðra aukaþjónustu

Vinsamlegast kynnið ykkur almenna skilmála okkar á skilmalar.fitravel.net.