Fara í aðalefni
Alicante

Alicante – sólarfrí og spænsk stemning

Alicante er falleg strandborg á Costa Blanca á Spáni. Borgin er þekkt fyrir sjarmerandi gamlan miðbæ, líflegt mannlíf og góða matar- og vínmenningu. Þar má finna fjölbreytt úrval veitingastaða, kaffihúsa og verslana.

Í Alicante er mikið að sjá og gera. Þar eru söfn, sögulegar minjar, markaðir og skemmtilegt næturlíf með fjölmörgum börum og veitingastöðum.

Við borgina er glæsileg, um 7 km löng sandströnd. Alicante hentar því vel fyrir þá sem vilja sameina afslöppun á ströndinni og skemmtilega borgarferð.

Gamli bærinn og Santa Barbara-kastalinn

Gamli bærinn í Alicante er fallegur og fullur af sjarma. Þar fyrir ofan stendur Santa Barbara-kastalinn sem er eitt þekktasta kennileiti borgarinnar. Frá kastalanum er stórkostlegt útsýni yfir borgina og ströndina.

Strendur og mannlíf

Strendur Alicante eru vinsælar og þar er notalegt andrúmsloft. Meðfram ströndinni og höfninni er mikið úrval af veitingastöðum og börum þar sem hægt er að njóta spænskrar stemningar.

Matur og spænsk matarupplifun

Alicante er frábær áfangastaður fyrir matgæðinga og er matarupplifunin stór hluti af stemningunni í borginni. Þar má smakka ekta spænska matargerð á notalegum tapasbörum, litlum fjölskyldureknum veitingastöðum og glæsilegum sjávarréttastöðum við höfnina.

Svæðið er sérstaklega þekkt fyrir ferskt sjávarfang, paellu og aðra rétti úr hrísgrjónum sem eiga sterkar rætur á Costa Blanca. Einnig er mikið úrval af spænskum ostum, skinkum og staðbundnum vínum sem gera matarferðina einstaka.

Það sem gerir Alicante sérstaka er afslappað andrúmsloftið þar sem heimamenn njóta matar og samveru langt fram á kvöld. Að sitja úti á torgi með tapas og vínglas í hönd er upplifun sem margir ferðalangar segja vera eitt það besta við borgina.

Verslun

Í miðbænum eru margar verslanir, meðal annars El Corte Inglés, Zara, Primark, Pull&Bear, Stradivarius, Bershka, Mango og H&M.

Fallegir staðir í nágrenninu

Margir fallegir bæir eru í nágrenni Alicante og tilvalið að skoða þá á bílaleigubíl. Þar má nefna Altea, Alcoy og Villajoyosa sem eru vinsælir og fallegir staðir.