Gran Canaria – sól, strendur og kanarísk stemning
Gran Canaria er einn vinsælasti áfangastaður Kanaríeyja og hefur um árabil verið í miklu uppáhaldi hjá íslenskum ferðamönnum. Eyjan býður upp á stöðugt og milt loftslag allt árið, sólríkar strendur, fjölbreytt landslag og líflegt mannlíf sem höfðar til allra aldurshópa.
Á Gran Canaria er auðvelt að sameina afslöppun, afþreyingu og upplifun, hvort sem þú vilt njóta strandlífs, skoða bæi eða prófa fjölbreytta skemmtigarða og útivist.
Strendur og svæði
Playa del Inglés er einn þekktasti ferðamannastaður eyjarinnar, með langri sandströnd sem teygir sig til San Agustín og Maspalomas. Þar er mikið líf, góð aðstaða og fallegar gönguleiðir við sandöldurnar og vitann í Maspalomas.
Maspalomas er sérstaklega þekkt fyrir stórbrotnar sandöldur og afslappað strandlíf. Þar eru einnig vinsælir verslunarkjarnar eins og Yumbo Center, Kasbah, Cita og Faro 2.
Skemmtigarðar og afþreying
Gran Canaria býður upp á fjölbreytta afþreyingu fyrir alla aldurshópa. Þar má meðal annars finna Aqualand, Palmitos Park, Sioux City, Cocodrilo Park, Holiday World, Go Kart, Hangar 37 og Angry Birds Activity Park.
Að auki er mikið úrval af vatna- og sjóafþreyingu eins og jetski, bananabátur, hjólabátar, fallhlíf úr báti, köfunarbátar og bátar með glergólfi.
Fyrir þá ævintýragjörnu er einnig boðið upp á fallhlífarstökk.
Puerto Rico – sól, hafnarlíf og afslöppun (30 mín frá flugvelli)
Puerto Rico er sjarmerandi strandbær á suðvesturhluta Gran Canaria sem hefur þróast í kringum tvær smábátahafnir. Þar er einnig notaleg sandströnd, Playa de Puerto Rico, með góðri aðstöðu, veitingastöðum og sólbaðssvæðum.
Í dalnum og hlíðunum í kring er mikið úrval af verslunum, veitingastöðum og afþreyingu fyrir fjölskyldur, þar á meðal Angry Birds leiksvæði.
Rétt við hliðina er Playa de Amadores, ein fallegasta strönd eyjarinnar með hvítum sandi, tærum sjó og afslöppuðu strandlífi.
Puerto Rico er þekkt fyrir eitt besta veður á eyjunni allt árið um kring og hentar vel fyrir bæði fjölskyldur og pör.
Puerto de Mogán – litlu Feneyjar (45 mín frá flugvelli)
Puerto de Mogán er einn fallegasti bær Gran Canaria og oft kallaður litlu Feneyjar vegna síkjanna og fallegra brúarsambanda í bænum.
Bærinn er rólegur, rómantískur og einstaklega fallegur, með litlum göngugötum, veitingastöðum við höfnina og afslappaðri strandstemningu.
Þar er einnig falleg strönd, verslanir og notaleg útivistarsvæði sem gera staðinn að einum vinsælasta áfangastað eyjarinnar fyrir þá sem vilja ró og lúxus.
Las Palmas – höfuðborg Gran Canaria
Las Palmas er höfuðborg Gran Canaria og stærsta borg Kanaríeyja. Þar býr stór hluti íbúa og borgin býður upp á fjölbreytt menningar- og mannlíf.
Gamli borgarhlutinn er sérstaklega heillandi með sögulegum byggingum, torgum, kaffihúsum og veitingastöðum. Borgin er lifandi allan daginn og fram á kvöld og hentar vel fyrir þá sem vilja upplifa borgarstemningu samhliða strandfríi.
Hagnýtar upplýsingar
-
Flugvöllur: Gran Canaria (LPA)
-
Flugtími: um 5,5–6 klukkustundir
-
Akstur til Playa del Inglés: um 20–30 mínútur
-
Tungumál: Spænska
-
Gjaldmiðill: Evra
-
Sumarhiti: Um 28°C+
-
Vetrarhiti: Um 20°C+
-
Tími: +1 á sumrin / 0 á veturna
-
Landgóði: +34