Fara í aðalefni
Hurghada

Hurghada – sól, sjór og ævintýri við Rauðahafið

Hurghada er ein vinsælasta strandborg Egyptalands og býður upp á einstaka blöndu af sól, sjó, afslöppun og ævintýrum. Þar mætast hvítar sandstrendur og kristaltær sjór sem skapa fullkomnar aðstæður fyrir sólbað, köfun og vatnsíþróttir.

Svæðið er þekkt fyrir hlýtt loftslag allt árið og líflegt andrúmsloft þar sem ferðamenn geta notið bæði rólegrar hvíldar og spennandi upplifana.

Strendur, sjór og náttúra

Dagurinn í Hurghada getur byrjað með bátsferð út á kóralrif Rauðahafsins þar sem hægt er að synda meðal litríkra fiska og upplifa einstakt neðansjávarlíf.

Strendur svæðisins eru langar, sólríkar og vel búnar fyrir gesti sem vilja slaka á eða prófa fjölbreyttar vatnsíþróttir.

Eyðimörk og ævintýri

Þegar líður á daginn tekur eyðimörkin við með fjölbreyttum ævintýrum. Þar er hægt að fara í fjórhjólaferðir, jeppaferðir eða kameldýraferðir um gullna sandinn.

Sólsetrið í eyðimörkinni er sérstaklega áhrifamikið þar sem himininn fyllist af hlýjum rauðum og gylltum litum.

Borgarlíf og menning

Hurghada býður einnig upp á líflegt borgarlíf með mörkuðum, verslunum og veitingastöðum þar sem hægt er að upplifa ekta egypska menningu.

Í El Gouna má finna fallega höfn, nútímalegan arkitektúr og afslappaða stemningu þar sem arabísk og nútímaleg hönnun mætast.

Á kvöldin lifnar borgin við með tónlist, veitingastöðum og strandklúbbum við sólarlag.

Afþreying

Hurghada býður upp á fjölbreytt úrval af skoðunarferðum og afþreyingu.

Vinsælar dagsferðir eru meðal annars til Luxor, þar sem fornminjar og hof Egyptalands eru skoðuð, og til Kaíró þar sem Egyptaþjóðminjasafnið og pýramídarnir í Giza eru helstu viðkomustaðir.

Einnig eru styttri ferðir í boði um Hurghada-svæðið sjálft og vatnsrennibrautagarður í Makadi Bay sem hentar allri fjölskyldunni.

Hótel og aðstaða

Flest hótel í Hurghada bjóða upp á „allt innifalið“ þar sem morgunverður, hádegisverður, kvöldverður, snarl og innlendir drykkir eru innifalin.

Á flestum hótelum er Wi-Fi í boði, þó hraði geti verið mismunandi eftir staðsetningu og hótelum. Í sumum tilfellum er hægt að kaupa hraðari nettengingu.

Hátíðarkvöldverður um jól og áramót er innifalinn í verði.

Vegabréfsáritun

Íslenskir ferðamenn þurfa vegabréfsáritun til Egyptalands. Hún er gefin út við komu á flugvelli með aðstoð starfsmanna.

Kostnaður er 4.900 krónur á mann og greiðist fyrir brottför.

Hagnýtar upplýsingar

  • Flugvöllur: Hurghada International (HRG)
  • Flugtími: um 6–7 klukkustundir
  • Akstur til hótelasvæða: um 10–30 mínútur
  • Tungumál: Arabíska
  • Gjaldmiðill: Egypskt pund (EGP)
  • Sumarhiti: Um 35°C+
  • Vetrarhiti: Um 23°C+
  • Tími: +3 allt árið
  • Landgóði: +20