Krít – menning, saga og einstök náttúrufegurð
Krít er stærsta eyja Grikklands og ein sú fjölbreyttasta í allri Evrópu. Þar mætast einstök náttúra, rík saga og lifandi menning sem gerir eyjuna að einum vinsælasta áfangastað Miðjarðarhafsins.
Andrúmsloftið á Krít er sérstakt þar sem daglegt líf heimamanna er enn sterkt þrátt fyrir ferðaþjónustu. Krítverjar eru stoltir af menningu sinni og taka ferðamönnum opnum örmum.
Eyjan býður upp á frábært loftslag með sólríkum dögum nánast allt árið, fjölbreytt landslag, fjöll með snæviþöktum toppum, fallegar strendur og lifandi bæjar- og sveitalíf.
Matur og menning
Krít er þekkt fyrir framúrskarandi matarmenningu. Þar er lögð áhersla á ferskt hráefni, grænmeti, fisk, kjöt, ólífuolíu, gott vín og osta sem eru hluti af hefðbundinni matarhefð eyjarinnar.
Chania – höfuðstaður vesturhlutans
Chania er ein fallegasta borg Krítar og fyrrum höfuðstaður eyjarinnar. Gamli bærinn ber sterkan svip af feneyskum og tyrkneskum áhrifum með þröngum götum og sögulegum byggingum.
Höfnin er hjarta borgarinnar og þar er líflegt mannlíf allan daginn og langt fram á kvöld, sérstaklega yfir sumartímann. Í kringum höfnina eru veitingastaðir, barir og verslanir sem skapa lifandi og heillandi stemningu.
Meðfram strandlengjunni milli Chania og Platanias er samfelld byggð með hótelum, íbúðum, veitingastöðum og fallegum ströndum.
Rethymnon – sjarmerandi miðbær og strandlíf
Rethymnon er staðsettur á milli Chania og Heraklion og sameinar sögu, menningu og strandlíf.
Gamli bærinn er sérstaklega fallegur með þröngum götum og sögulegum byggingum. Fiskihöfnin er eitt af einkennum bæjarins og gefur honum einstakan miðaldasjarma.
Ströndin í Rethymnon teygir sig langt meðfram bænum og við hana er löng göngugata með pálmatrjám, veitingastöðum og kaffihúsum.
Samariagljúfur – einstök náttúruupplifun
Samariagljúfur er eitt þekktasta náttúruundur Krítar og ein lengsta gljúfurganga Evrópu.
Gangan er um 16–17 km löng og hefst á Omalos-hásléttunni. Leiðin liggur niður í gegnum dramatískt landslag með háum klettaveggjum og þröngum göngum þar sem gljúfrið er aðeins nokkrir metrar á breidd.
Gangan endar í Agia Roumeli þar sem hægt er að slaka á og baða sig í sjónum áður en haldið er til baka.
Santorini – dagsferð til eldfjallaeyju
Santorini er ein af þekktustu eyjum Grikklands og er fræg fyrir einstakt landslag sitt, hvít hús, svartar strendur og dramatíska kletta.
Eyjan er leifar forns eldfjalls og hefur einstaka fegurð sem laðar að ferðamenn frá öllum heiminum.
Þetta er vinsæl dagsferð frá Krít þar sem siglt er yfir Eyjahaf og eyjan skoðuð.
Elafonissi – ein fallegasta strönd Krítar
Elafonissi er þekkt fyrir kristaltæran sjó og ljósan sand sem víða hefur bleikan blæ.
Eyjan er tengd við meginlandið með grunnum sjó sem oft er hægt að vaða yfir, sem gerir upplifunina einstaka.
Knossos og Heraklion – saga Mínóamenningar
Knossos er eitt mikilvægasta fornminjasvæði Evrópu og miðpunktur Mínóamenningarinnar.
Þar er hægt að ganga um rústir forns hallarhúsnæðis og kynnast sögu sem nær yfir þúsundir ára.
Eftir heimsókn í Knossos er ekið til Heraklion, höfuðborgar Krítar, þar sem hægt er að skoða borgina, verslanir eða heimsækja fornleifasafnið.
Hagnýtar upplýsingar
-
Flugvöllur: Chania (CHQ)
-
Flugtími: um 5–6 klukkustundir
-
Akstur til vinsælla dvalarstaða: 15–60 mínútur
-
Tungumál: Gríska
-
Gjaldmiðill: Evra
-
Sumarhiti: Um 30°C+
-
Vetrarhiti: Um 15°C+
-
Tími: +3 á sumrin / +2 á veturna
-
Landgóði: +30