Fara í aðalefni
HÓPAFERÐIR

Þú skemmtir þér, við skipuleggjum

Úrval Útsýn hefur áralanga reynslu af skipulagningu hópferða og hefur hjálpað Íslendingum að upplifa heiminn í yfir 70 ár. Við aðstoðum við flug, hótel, viðburðastaði og dagskrá, allt frá skólaheimsóknum til ógleymanlegra hátíðarkvöldverða.

 
Sendu okkur fyrirspurn — við hjálpum ykkur að búa til réttu ferðina fyrir hópinn - [email protected]
Hópferðir með Úrval Útsýn

Þjónusta Úrval Útsýn

  • Val á áfangastað og gistingu sem hentar þínum hópi. 
  • Við bjóðum ferðir í áætlunarflugi, leiguflugi og sérleiguflugi fyrir fyrirtæki.
  • Við sjáum meðal annars um bókun á veitingum, veislustjóra, veislusölum, skemmtiatriðum, fararstjórum, skoðunarferðum og rútum.
  • Úrvalsþjónusta við hópinn allt frá fyrstu hugmynd að heimferð.

Fáðu tilboð fyrir hópinn þinn

Árshátíðarferðir
Endurmenntunarferðir 
Ferðir fyrir félagasamtök
Ferðir fyrir saumaklúbba
Golfferðir
Íþrótta- og æfingaferðir
Kórar
Menningarferðir
Ráðstefnuferðir
Sérsniðnar hópferðir
Útskriftarferðir
 
  

Fjölbreytt úrval áfangastaða

Alicante · Amsterdam · Aþena · Barcelona · Berlín · Bologna · Brussel · Búdapest · Dublin · Edinborg · Frankfurt · Gdansk · Genf · Glasgow · Hamborg · Helsinki · Kaupmannahöfn · Kraká · Lissabon · Liverpool · London · Madrid · Malaga · Manchester · Marrakesh · Mílanó · München · Napólí · Nice · Osló · Ibiza · Palermo · París · Porto · Prag · Riga · Róm · Stokkhólmur · Varsjá · Verona · Vín · Zürich. 

 

Takk fyrir traustið

Við erum stolt af þeim fjölbreytta hópi viðskiptavina sem hefur treyst okkur fyrir ferðum sínum. Þar á meðal eru Afltak, Fjármálaráðuneytið, Framkvæmdasýslan, Lagnatækni, LMG, LSR, Malbikunarstöðin, Rafstjórn, Samherji, Vélsmiðja Þóris, World Class, Þrymur, Armar, Ás Fasteignasala, Heilsugæslan höfuðborgarsvæðisins, K. Karlsson Dublin, Karlakórinn Heimir, Kvenfélag Ólafsvíkur, Lögmannsstofan Mörkin, Lögmenn Suðurlandi, Rarik, Remax, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Steypustöðin, Sölufélag Garðyrkjubænda, Tryggingar og ráðgjöf, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið.   
 
"Mig langar að þakka þér og öllu teyminu hjá Úrval Útsýn kærlega fyrir skipulagningu árshátíðarferðar Steypustöðvarinnar til Ibiza. Ferðin gekk í alla staði framúrskarandi vel. Fararstjórarnir eiga sérstakt hrós skilið. Það var greinilegt að þau höfðu undirbúið móttökuna vel: allt ferlið frá flugvellinum og innritunin á hótelið gekk smurt fyrir sig, þrátt fyrir stóran hóp ( það var örugglega slegið hraðamet í innritun). Þau voru fagleg og sýnileg alla ferðina, meðal annars með viðtalstíma á hverjum morgni, og sinntu sínum hlutverkum einstaklega vel.
Við stjórnendurnir kunnum líka sérstaklega að meta hvað þau voru dugleg að halda okkur upplýstum og fullvissa okkur um að allt væri undir stjórn. Það gerði okkur kleift að slaka á og njóta ferðarinnar með samstarfsfólkinu okkar.
Vinsamlegast komdu okkar bestu þökkum áfram til fararstjóranna. Þau voru öll framúrskarandi og eiga stóran þátt í því hversu vel ferðin tókst. Kærar þakkir fyrir gott samstarf. Steypustöðin."
 

Hafðu samband við okkur

Fylltu út formið hér að neðan og segðu okkur frá ferðinni sem þú hefur í huga. Við hjálpum þér að skipuleggja ferðina.

Birtist eyðublaðið ekki? Opnaðu eyðublaðið hér