Fara í aðalefni
Hurghada

☀️ Jól eða áramót við Rauðahafið ☀️

Ímyndaðu þér að skipta út snjónum og kuldanum fyrir sól, pálmatré og tærblátt haf. Hurghada í Egyptalandi er einn vinsælasti sólarstaður Rauðahafsins og fullkominn áfangastaður til að halda jólin eða áramót í allt öðrum anda.

 Jólaferð 18. - 28. desember
Áramót 28. des - 7. janúar
Golfferðir einnig í boði!
 
Stórfjölskyldur hafið samband [email protected] eða 585 4000
 

Af hverju Hurghada?

  • ✈️ Dagflug frá Íslandi – einfalt og þægilegt.

  • Gott úrval af allt innifalið hótelum – matur, drykkir og veitingar allan daginn.

  • Hentar fjölskyldum og stórfjölskyldum – allir njóta sín, saman í sólinni.

  • Frábær afþreying fyrir börn – barnaklúbbar, vatnagarðar, sundlaugar og leiksvæði.

  • Sólarblíða í desember – um 20–25 gráður yfir daginn, fullkomið fyrir þá sem vilja sleppa vetri.

  • Hátíðarkvöldverður í jóla- og áramótaferð.

 

Það sem bíður þín í Hurghada:
Hurghada er þekkt fyrir kristaltært Rauðahafið og litríkt kóralrif, sem gerir snorkl og köfun að algjöru ævintýri. Þar er líka fjölbreytt afþreying fyrir alla – frá eyjaferðum og sjóævintýrum til skemmtidagskrár á hótelinu. Fyrir þá sem vilja blanda saman sólarfríi og menningu eru dagferðir til Lúxor og Kaíró frábær viðbót við upplifunina.
 
Flugið 
Áætlaður flugtími er um 7 klst og 35 mínútur. Hægt er að kaupa sæti í vélinni í ýmsum verðflokkum. Athugið: Stutt eldsneytisstopp á Ítaliu.
 
Vegabréfsáritun
Íslenskir ferðamenn þurfa vegabréfsáritun til Egyptalands. Áritunin er auðfengin og er hún afgreidd á flugvellinum við komu með aðstoð starfsmanna umboðsskrifstofu Úrval Útsýn. Kostnaður er 34 evrur pr mann og er greidd á staðnum.
 
Skoðunarferðir sem hægt er að bóka í 
Dagsferð til Cairo: pýramídar, sphinx og þjóðminjasafnið í Cairo
Dagsferð til Luxor
Jeppasafarí og kamelreið 
Bátsferð
Skoðunarferð um Hurghada 
 
Hægt að kaupa rútu frá flugvelli að hóteli.
 
Þjónustufulltrúi frá okkur verður á staðnum. 
 

Gerðu hátíðina ógleymanleg með sól, sælu og ævintýrum í Hurghada!