Kanarí er einn besti áfangastaður í heimi til að njóta íþrótta og er þekkt fyrir góðar og skemmtilegar hjólaleiðir. Eyjan fagra tekur fagnandi á móti þér með góðu og jöfnu hitastigi allt árið um kring. Kanarí hefur notið sívaxandi vinsælla meðal íslenskra hjólara undanfarin ár. Eyjan býður upp á fullt af flottum og sumum hverjum krefjandi hjólaleiðum. Ferðin er bæði fyrir rafhjóla unnendur og þá sem vilja hjóla á rafmagns racer götuhjólum.
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, 7 nætur á Bull Vital Suites & Spa 4★ með morgunverði, íslensk fararstjórn, akstur til og frá flugvelli, og leiga á rafhjólum.
Ferðalýsing
Verið velkomin í viku hjólaferð til fallegu eyjarinnar Kanarí. Í þessari ævintýralegu hreyfiferð verður hjólað um eyjuna og ferðin er bæði fyrir rafhjóla unnendur og þá sem vilja hjóla á rafmagns racer eða á götuhjólum. Kanarí er einn besti áfangastaður í heimi til að njóta íþrótta og er þekkt fyrir góðar og skemmtilegar hjólaleiðir. Eyjan fagra tekur fagnandi á móti þér með góðu og jöfnu hitastigi allt árið um kring.
Dagskrá
Dagur 1, þriðjudagur, 22. október 2024 — Brottför
Ferðin hefst með flugi Icelandair frá Keflavík kl. 09:20 og við lendum í Las Palmas kl. 15:40.
Á flugvellinum á Las Palmas býður okkur rúta sem ekur okkur til Bull Vital Suits & Spa.
Það tekur um það bil 30 mín að keyra til hótelsins frá flugvellinum.
Þegar að á hótelið er komið verður fundur með fararstjóra sem fer vel yfir dagskrána með hópnum.
Dagur 2, miðvikudagur, 23. október 2024 — Soria
Á fyrsta degi okkar er náð í reiðhjólin. Eftir það er hjólað til Soria sem er góð hjólreiðaleið fyrir fyrsta daginn. Hópurinn getur valið að hjóla klifrið eða fá sér hressingu.
Hjóluð dagleið: 50-75 km
Lóðréttur hæðarmunur: 600-1000m
Dagur 3, fimmtudagur, 24. október 2024 — Hjóla til Santa Lucia
Hjólað verður Austurs eftir til Vecindario þar er hjólað aðeins upp í fjöllin og þaðan í áttina að Aguimes þaðan er farið upp til Santa Lucia. Eftir það er hjólað tilabaka sem tekur ca.30 km og hjólað er mest megnis í niðri móti.
Hjóluð dagleið: 60-90 km
Lóðréttur hæðarmunur: 1000-1450m
Alls tímar: 3- 5 tímar
Dagur 4, föstudagur, 25. október 2024 — Porto Rico - Mogán
Hjóla til Porto Rico, þaðan tekin bátur og siglt til Puerto De Mogán sem kostar ca. 5 – 10 evrur.
EFtir það tekur við að hjóla upp Mogán héraðið á Kanarí. Þessi hjólreiðaleið er sennilega ein flottasta leiðin (klifrið) á Kanarí og eftir það er hjólað niður að Soria til hótelsins.
Hjóluð dagleið 80km.
Lóðréttur hæðarmunur: 1400
Alls tímar: 3-5 tímar
Dagur 5, laugardagur, 26. október 2024 — Hjólað til Aycata
Í dag er ferðinni haldið í skemmtilega ferð og við byrjum á að hjóla frá Ensku ströndinni og þaðan er haldið til Ayacata. Við stoppum þar og snæðum hádegisverð saman. EFtir það er hjólað í áttina að Sorya.
Við stoppum þar og snæðum, síðan hjólað heim. þetta verður lengsti hjóladagurinn í þessari ferð.
Dagur 8, þriðjudagur, 29. október 2024 — Enska ströndin og nágrenni
Hjólað upp lítinn dal við Ensku ströndina 25 km hringur með 700m hækkun þaðan verður hjólað vestur eftir eyjunni til Taurito og til baka og stoppað í Amadores í kaffi / mat og þaðan heim á hótel.
Sameiginlegur kvöldverður á vel völdum veitingastað.
25 km hringur
700 m hækkun
Dagur 9, miðvikudagur, 30. október 2024 — Heimferð
Brottfaradagur. Akstur frá hóteli að flugvelli og nánari upplýsingar veitir fararstjóri um tímann.
Flug með Icelandair frá Las Palmas kl. 15:40 og við lendum í Keflavík kl. 21:10.
ATH. Dagskráin í ferðinni getur breyst án fyrirvara.
Gistingar í boði
Bull Vital Suites er góð 4 stjörnu gisting rétt hjá Maspalomas Golf golfvellinum. Hótelið er tilvalið fyrir þá sem vilja spila golf. Hótelið er staðsett á friðsælum stað nálægt Maspalomas sandöldunum. Í nágrenni við hótelið eru ótal góðir veitingastaðir og barir og hin fræga Enska strönd er í 1 km fjarlægð frá hótelinu.
GISTING
Á þessu hóteli eru einungis rúmgóðar svítur sem samanstanda af einu svefnherbergi með hjónarúmi, stofu með svefnsófa og baðherbergi með baðkari. Svíturnar eru loftkældar og þar er að finna sjónvarp, síma, mini-bar og öryggishólf (gegn gjaldi). Öllum junior svítum fylgja svalir eða verönd.
AÐSTAÐA
Gróðursæll, fallegur garður með sundlaug, barnalaug og sólbaðsaðstöðu er við hótelið. Þar er einnig að finna Bali rúm til þess að slaka á í. Heilsulind hótelsins býður upp á nudd og margskonar snyrtimeðferðir ásamt líkamsræktaraðstöðu. Frítt internet er í gestamóttöku.
AFÞREYING
Góð setustofa þar sem gestir geta kælt sig niður og fengið sér fordrykk eða slakað á eftir góða máltíð. Hótelið er staðsett rétt hjá Maspalomas Golf og einungis 15 mínútna akstur er í aðra góða golfvelli.
VEITINGAR
Á hótelinu er veitingastaðurinn El Capricco sem er veitingastaður sem býður upp á hlaðborð og sérhæfir sig í Miðjarðarhafsmatseld og fjölbreyttum alþjóðlegum mat. Hann er opinn á morgnana og á kvöldin. Á hótelinu er einnig sundlaugarbar. Þeir sem eru með hálft fæði velja af matseðli forrétt, aðalrétt og eftirrétt svokallaður "Set Menu"..
STAÐSETNING
Hótelið er staðsett rét hjá Maspalomas Golf golfvellinum og hentar því kylfingum vel.
AÐBÚNAÐUR Á VITAL SUITES
Útisundlaug
Sólbekkir
Sundlaugabar
Stutt á stöndina
Líkamsrækt
Heilsulind
Gufubað
Nudd
Veitingastaður
Bar
Lifandi tónlist
Þvottahús
ATH
Ljósmyndir af gististöðum eru birtar til að gefa hugmynd um vistarverur og umhverfi gististaða. Við getum því ekki ábyrgst að engar breytingar hafi átt sér stað frá því að myndirnar voru teknar.
Aðgangur að interneti getur verið hægari á álagstímum. Vinsamlegast athugið að internet er yfirleitt frekar hægt á gististöðum.
Kanarí / Gran Canaria
Áratugum saman hafa íslendingar sótt í dásamlegar strendur Gran Canaria og hefur eyjan verið einn vinsælasti áfangastaður Úrvals Útsýnar. Ungir sem aldnir finna varla betri stað fyrir sólarfrí. Stöðugt hitastig, þægilegt loftslag, hreinar strendur og stórbrotið landslag er eitthvað sem heillar alla!
Úrval Útsýn býður íslendingum fjölda áfangastaða á Gran Canaria. Gisting er fjölbreytt og úrval er mikið af gæða gistingu á góðu verði.
Skemmtigarðar
Aqualand
Palmitos Park
Sioux City
Cocodrilo Park
Holiday World
Go Kart
Hangar 37
Angry Birds
Verslunarmiðstöðvar
Las Arenas
El Mirador
El Tablero
Atlanrico
Bellavista
El Faro
Afþreying
Hjólabátur
Bananabátur
Jetski
Fallhlíf úr báti
Kafbátur
Bátur með glergólfi
Fallhlífastökk
Enska ströndin (20 mín frá flugvelli)
Playa del Ingles er vinsæll ferðamannastaður en nafnið á bæði við um ströndina og bæinn. Ströndin teygir sig til San Augustin í austri og Maspalomas í vestri. Góð aðstaða er fyrir gönguferðir og hlaup við vitann í Maspalomas og sandöldurnar freista margra. Flestir þekkja verslunarkjarnana Yumbo Center, Kasbah, Cita og Faro 2.
Meloneras svæðið (30 mín frá flugvelli)
Meloneras svæðið er orðið sambyggt Ensku ströndinni að vestan. Mikil uppbygging hefur átt sér stað á Meloneras svæðinu, með áherslu á tengingu við náttúruna. Ströndin á Maspalomas er stór og þekkt fyrir mikla og sérstæða sandhóla sem gerir ströndina sérlega skemmtilega til fjölbreyttrar útiveru. Við vitann Boulevard El Faro er að finna fjöldan allan af veitingastöðum og verslunum.
Puerto Rico – smábátahöfn (30 mín frá flugvelli)
Puerto Rico er afar sjarmerandi og fallegur bær á suðvesturhluta eyjunnar Gran Canaria. Bærinn hefur að mestu leyti byggst upp í kringum smábáthafnirnar en í dag eru þær orðnar tvær og við aðra þeirra er að finna ströndina Playa de Puerto Rico. Þar er að finna fallega veitingastaði við sjóinn sem og góða sólbaðsaðstöðu. Bærinn hefur byggst upp í kringum tvær víkur eða tvo dali og rísa hæðirnar í kring tignarlegar yfir svæðið. Í dalbotninum er svo að finna skemmtilegt svæði með verslunum, verslunarmiðstöðum, veitingastöðum og leiksvæðinu „Angry Bird’s“ sem hentar fyrir ungu kynslóðina. Rétt utan við bæinn er svo hin nýja og fagra strönd „Playa de Amadores“ þar sem hægt er að sóla sig á hvítum sandi allan daginn. Fagurblár sjór, veitingastaðir og verslanir eru við ströndina, en þar er einnig að finna Amadores Beach Club sem býður upp á bekki og veitingar í fallegu umhverfi. Playa de Puerto Rico státar af einu besta loftslagi sem fyrirfinnst á öllum Kanaríeyjunum allt árið um kring. Við mælum með að fólk leigi sér bíl og keyri meðfram strandlengjunni eða taki stræisvagna sem ganga á milli allra bæjanna á suðurhlutanum, því stutt er yfir til Puerto de Mogan og Playa del Ingles svæðanna. Við bjóðum upp á 5 ólíkar gistingar á þessu skemmtilega svæði. Sem dæmi er að finna falleg íbúðarhótel við smábátahöfnina sem hafa allt til alls og henta fólki sem kýs meiri “lúxus” og vill vera miðsvæðis. Fyrir þá sem þora og geta erum við einnig með gistingar í hlíðunum fyrir ofan svæðið en þaðan er ótrúlega fallegt útsýni yfir bæinn, smábátahöfnina og Atlantshafið. Þessar gistingar henta ekki þeim sem eiga erfitt með gang. Til að komast niður í bæinn er hægt að taka leigubíl sem tekur um 5 mínútur og kostar hvor leið um 5 evrur.
Puerto de Mogan — „litlu Feneyjar“ (45 mín frá flugvelli)
Einn af fallegustu bæjum eyjunnar er Puerto de Mogan, sem er staðsettur á suð-vestur hluta Gran Canaria. Puerto de Mogan er stundum kallaður “litlu Feneyjar” enda ekki skrýtið þar sem hafnarsvæðið er allt byggt upp í kringum lítil síki með fallegum veitingastöðum og skemmtilegum gönguleiðum milli húsanna. Þessi einstaki hafnarbær hefur að geyma ótrúlega fallegt og róandi andrúmsloft sem krefst þess að maður slaki á, njóti og nái algerri hvíld. Falleg strönd er við höfnina með veitingastöðum og börum. Þar fyrir ofan eru svo verslanir og útivistarsvæði. Gistingarnar okkar á svæðinu eru glæsilegar og hannaðar til að gefa fólki tækifæri á að slaka á og njóta hverrar sekúndu í fallegum vistarverum og görðum sem umlykja hótelin. Þetta svæði hentar öllum sem vilja “lúxus” og endurnæringu á líkama og sál.
Las Palmas – höfuðborg Gran Canaria (20 mín frá flugvelli)
Las Palmas er höfuðborg Gran Canaria og um leið Austurhéraðs Kanaríeyja, en eyjarnar eru tvö héruð af sautján héruðum Spánar. Í Las Palmas býr um helmingur allra íbúa Austurhéraðs. Þar er að finna fjölbreytilegt menningar- og mannlíf jafnt að nóttu sem degi, sérstaklega í gamla borgarhlutanum. Kaffihús eru þar á hverju strái sem og einstök flóra veitingastaða og öldurhúsa þar sem allir finna eitthvað við sitt hæfi.
Athugið
Staðfestingargjald er 80.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast kannið forfallatryggingar sem fylgja kreditkortum og/eða heimilistryggingum.
Ferðaskrifstofan/fararstjóri áskilur sér rétt til að breyta áætlun ferðar ef veður, umferð eða aðrar ófyrirsjáanlegar aðstæður gefa tilefni til.
Mikilvægt er að nöfn á bókunum stemmi nákvæmlega við nöfn í vegabréfi. Það er á ábyrgð farþega ef svo er ekki.
ferðamannaskattur
drykkir með kvöldverði
city tax
þjórfé
annað sem ekki er tekið fram í ferðalýsingu
Þátttakendur skulu hafa meðferðis fatnað við hæfi sérstaklega skal minnt á góðan skóbúnað.
Gönguferðir okkar leggja mesta áherslu á skemmtun og upplifun. Við gerum engar kröfur um líkamlegt atgervi þátttakenda vegna þátttöku í hjóla- og gönguferðum. Skipulagning er með þeim hætti að ekki eru gerðar kröfur um sérstakar æfingar eða þjálfun fyrir ferðirnar heldur gengið út frá því að þátttakendur séu í þokkalegu formi og stríði ekki við veikindi.
Ef þið eruð í vafa mælum við með heimsókn til heimilislæknis og að fara að hans ráðum. Það er ábyrgð þátttakenda að hafa líkamlegt atgervi til að ljúka ferðinni. Upplýsingar okkar um líkamlega getu þátttakenda eru aðeins til upplýsingar eftir bestu vitneskju og reynslu en frávik eru ekki á okkar ábyrgð. Ef þátttakandi treystir sér ekki til að ljúka ferð sem gengið hefur samkvæmt áætlun er það á hans ábyrgð en ekki okkar.