Iðandi mannlíf, þröngar götur, grænir skrúðgarðar, fornar byggingar, saga og rómantík einkenna Lissabonborg í Portúgal. Lissabon hefur yfir sér ákveðinn þokka þar sem minningar glæstrar fortíðar þjóðarinnar kallast á við iðandi nútímann – við mælum með að skoða muni og minjar, njóta andrúmsloftsins og fylgjast með mannlífinu í þessari dásamlegu borg.
Innifalið í verði:
Beint flug fram og til baka, flugvallagjöld og skattar, ferðataska og handfarangur, og 3 nætur á 4 stjörnu gistingu með morgunverði.
Ekki innifalið í verði:
Athugið að ekki er boðið upp á fararstjórn, máltíðir aðrar en morgunverður, flugvallarakstur, þjórfé, eða city tax.
Ferðalýsing
Saga og menning
Yndisleg og fróðleg borgarferð til Lissabon, sem hefur svo sannarlega slegið í gegn og komast iðulega færri að en vilja.
Yfir borginni gnæfir glæsilegur kastali frá tímum Mára sem reistur var á einni af sjö hæðum Lissabon. Meðfram torgum og minnismerkjum iðandi stórborgarinnar liðast svo Tagus fljót til sjávar. Gamli borgarhlutinn hefur yfir sér einkennilegan sjarma gamalla tíma og besta leiðin til þess að kynnast borginni er einmitt að þræða þröngar göturnar og anda að sér menningunni.
Saga Lissabon er mjög merkileg enda er hún nátengd sögu landafundanna á 16. öld, en það voru portúgalskir landkönnuðir sem fyrstir fundu siglingarleiðirnar til Indlands, Brasilíu og fleiri fjarlægra landa. Helstu minnismerki borgarinnar voru einnig reist á þeim tíma og eru ein helstu einkenni borgarinnar. Þar er að finna Bélem turninn og Hýrónímusar klaustrið sem bæði eru á heimsminjaskrá Sameinuðu Þjóðanna. Af nýrri kennileitum má nefna Landafundaminnismerkið og Kristslíkneskið sem heldur verndarhendi yfir borginni handan fljótsins. Það má með sanni segja að sagan drjúpi af hverju húsi í þessari lifandi borg.
Vert að sjá
Convento do Carmo
Covento do Carmo var kirkja sem var ein sú ríkasta og áhrifamesta í Lissabon. Hún var byggð seint á 14. öld. en hún eyðilagðist mikið í jarðskjálftanum 1755. Endurbygging hennar hófst árið 1756 en framkvæmdum var hætt árið 1845. Því stendur eftir þessi áhugaverða beinagrind.
Oceanário de Lisboa
Oceanário de Lisboa er stærsta sjávardýrasafn í Evrópu sem er innandyra . Þar er m.a. hægt að sjá mörgæsir, hákarla, otra, sæhesta, kóralla og fleira en í safninu eru um 450 tegundir sjávardýra. Safnið er opið alla daga frá 10. – 18.
Castelo de Sao Jorge
Castelo de Sao Jorge kastalinn stendur á hæð ofan við miðborg Lissabon. Kastalinn var upprunalega byggður á 11. öld sem virki. Á þeirri þrettándu var honum breytt í kastala fyrir portúgölsku konungsfjölskylduna og árið 1920 var hann endurbyggður. Í dag er hann einn vinsælasti viðkomustaður ferðamanna sem sækja Lissabom heim. Innan kastalans eru ´boði þar eru fríar skoðunarferðir, kaffihús og litlar matvöruverslanir. Kastalinn er opinn frá 9. – 21. Algegnt er að langar raðir myndist um miðjan dag, því er best að mæta á fyrri hluta dags eða síðdegis.
Matur og skemmtun
Þegar kvölda tekur er tilvalið að njóta gómsætrar matargerðarlistar Portúgala á einhverjum af mörgum veitingahúsum borgarinnar. Í gamla kastalahverfinu Alfama og Bairro Alto hverfinu má á kvöldin heyra tregablandinn söng og gítarleik tónlistarmanna, en Fado-tónlistin portúgalska á sér enga hliðstæðu. Lissabon er einnig þekkt fyrir fjörugt næturlíf og því ætti engum að leiðast í þessari töfrandi borg.
Martinho da Arcada
Hér er komið eitt elsta kaffihús í Lissabonborar, sem opnaði árið 1782. Hér saup kaffið sitt eitt þekktasta ljóðskáld landsmanna, Fernando Pessoa, sem lést árið 1935. Borðið sem hann sat við hefur verið haldið autt síðan og er aldrei nýtt sama hversu mikið er að gera. Kaffihúsið er við Praca do Comérclo 37, við Tagus ána.
Ba Wine Bar do Bairro Alto
Þessi huggulegi vínbar er með 200 mismunandi portúgölsk vín í hillunum. Þjónarnir gera sitt besta til að finna gott vín fyrir gesti, en þau eru reidd fram í glösum. Einnig bjóða þeir upp á létta rétti (osta og skinku) til að njóta með eðal vínglasinu. Barinn er afar vinsæll og því mikilvægt að panta borð í tíma.
Tagide hefur eitt besta útsýnið yfir Lissabon, en á verönd veitingastaðarins má sjá kastalann, dómkirkjuna og Tagus ána. Matseðill staðarins samanstendur af portúgalskri matreiðslu í sambland við alþjóðlega rétti.
Verslun í Lissabon
Í Lissabon eru fjölbreyttir verslunarmöguleikar og allir ættu að finna sitthvað við eitt hæfi. Þar er að finna sjarmerandi verslunargötur tilvalið er að eyða góðum tíma í að að þræða og fjölda verslunarmiðstöðva, ásamt fornmunaverslunum og öðrum sérverslunum. Baixa er aðalverslunarhverfi borgarinnar og er hægt að gera góð kaup á munum sem framleiddir eru í Portúgal s.s. leðurvörur, skó og annan fatnað. Einnig eru þar verslanir sem innihalda merkjavörur. Aðalverslunarmiðstöðvarnar eru Colombo, sem er ein sú allra stærsta í Evrópu með yfir 400 verslanir, Centro Vasco de Gama og El Corte Inglés. Auðvelt er að ferðast í borgarinni og neðanjarðarlestarkerfið til fyrirmyndar. Þess má geta að listamaðurinn Erró á heiðurinn af myndskreytingu einnar neðanjarðarlestarstöðvarinnar.