Fara í aðalefni

Kína og Hong Kong 1.-15. nóv 2026

Tímalengd: 15 Dagur/dagar , 14 nótt/nætur

Lýsing pakka

Kína og Hong Kong Peking, Xi'an, Guilin, Shanghai, Hong Kong

Uppgötvaðu leyndardóma Austurlanda frá Kínamúrnum og Terracotta-hernum til skýjakljúfa Hong Kong. Í þessari 15 daga hringferð renna keisarasaga, ævintýraleg náttúra og stórborgarlíf saman í eina ógleymanlega upplifun. Fararstjóri er Kristín A. Árnadóttir, sem veitir hópnum einstaka innsýn og dýpri skilning á töfrum Kína.

 

Kristín A. Árnadóttir

fararstjóri

Kristín hefur gegnt fjölmörgum lykilhlutverkum gegnum tíðina og m.a. starfað sem sendiherra í Helsinki, Vín og Peking.

 

Innifalið í verði

  • Flug fram og til baka
  • Flugvallagjöld og skattar
  • Ferðataska og handfarangur
  • Gisting
  • Íslensk fararstjórn
  • Innanlandsflug og hraðlestir samkvæmt dagskrá
  • 15 kg farangursheimild
  • Gisting í tvíbýli með morgunverði í tilgreindum hótelum eða sambærilegum
  • Hádegismatur og kvöldverður samkvæmt dagskrá
  • Allur akstur milli staða í loftkældri bifreið auk tilgreindra skoðunarferða með aðgangseyri
  • Leiðsögn innlendra sérhæfðra leiðsögumanna

Hvað er ekki innifalið?

  • Kostnaður við vegabréfsáritun
  • Ferðaskilríki og afgreiðslu á landamærum
  • Þjórfé
  • Tryggingar
  • Persónuleg útgjöld og annað það sem ekki er nefnt sérstaklega hér að framan

Ferðalýsing

Peking, Xi'an, Guilin, Shanghai og Hong Kong, stórbrotið ævintýri þar sem keisarasaga, ótrúleg náttúra og nútímalegar stórborgir renna saman í eina ógleymanlega ferð.

Í þessari sérferð upplifum við Kína í hæfilegum skömmtum á hverjum degi, með góðum aðbúnaði, þægilegum dagsleiðum og tækifæri til að njóta staðanna í rólegheitum. Við byrjum í Peking þar sem við göngum um Torg hins himneska friðar, Forboðnu borgina og Hutong-hverfin, heimsækjum Musteri himinsins og gefum okkur tíma til að upplifa lífið á götunum í nágrenni hótelsins að kvöldi. Við förum upp á Kínamúrinn við Juyong-hlið, skoðum Sumarhöllina og fáum tilfinningu fyrir hinu sögulega Kína áður en hraðlestin flytur okkur á þægilegan hátt til Xi'an.

Í Xi'an kynnumst við hinni fornu höfuðborg á borgarmúrnum, röltum um Múslímahverfið og sjáum hinn magnaða Terracotta-her (leirherinn) með sérfræðileiðsögn. Þaðan liggur leiðin í eitt magnaðasta náttúrusvæði ferðarinnar, til Guilin, sem er heimsþekkt fyrir ævintýralegt landslag sitt. Við skoðum Fílsbótshæðina og hina ævintýralegu „listahöll náttúrunnar" í Reyrflautuhellinum. Hápunkturinn hér er stórkostleg sigling á Li-á (Li River) á milli stórbrotinna kalksteinsfjalla, alla leið til hins heillandi bæjar Yangshuo, þar sem við njótum afslappaðs andrúmslofts við árbakkann.

Við höldum áfram til Shanghai, skínandi stjörnu sem á það til að stela hjörtum gesta. Þar sameinum við söguleg hverfi og nútíma skýjakljúfa: röltum um Yu-garðinn og Yuyuan-basarinn, heimsækjum silkiverksmiðju, njótum útsýnis og upplifum kvöldlífið á hinu rómaða hafnarsvæði, Bund (The Bund) og Nanjing-götu. Við bætum við degi í vatnaborginni Zhujiajiao, þar sem síki, brýr og lágreistar byggingar skapa allt annað andrúmsloft en í stórborginni.

Ferðin endar svo í heimsborginni Hong Kong, þar sem við förum með Peak Tram-kláfferjunni upp á Viktoríutopp, skoðum iðandi næturmarkaði og söguleg fiskimannahverfi eins og Aberdeen. Einnig gefst tækifæri til að fara í dagsferð til Makaó (Macau) og upplifa einstaka blöndu af portúgalskri og kínverskri menningu. Farþegar fá góða blöndu af skipulagðri dagskrá, gönguferðum og frjálsum tíma til að kanna nágrenni hótelsins á eigin vegum.

Dagskrá

Dagur 1–2, sunnudagur, 1. nóvember 2026 – mánudagur, 2. nóvember 2026 — Flug og koma til Peking

Ferðin hefst á Keflavíkurflugvelli 1. nóvember. Flogið er með Icelandair kl. 07:50 til Kaupmannahafnar og áfram með Air China kl. 18:00. Lent er í Peking kl. 09:45 að morgni 2. nóvember. Innlendur leiðsögumaður tekur á móti hópnum og ekið er á hótel til innritunar (kl. 14:00).

Kvöld: Velkominn kvöldverður með hinni heimsfrægu Peking-önd.

  • Innifalið: Morgunverður og kvöldverður.

Dagur 3, þriðjudagur, 3. nóvember 2026 — Heilsdags borgarferð um Peking

Peking sameinar stórbrotna sögu, keisaralega byggingarlist og líflegt mannlíf. Á einum degi heimsækjum við nokkra af frægustu stöðum borgarinnar.

Ferðin hefst á Torgi hins himneska friðar, eitt stærsti almenningstorg heims. Beint norðan við er Forboðna borgin, heimili kínverskra keisara í meira en 500 ár, með stórkostlegum hallarsvæðum og garðum.

Eftir hádegi heimsækjum við Musteri himinsins, fallegt keisarahof þar sem heimamenn stunda tai chi í görðunum. Daginn endum við í Hutong-hverfunum með þröngum strætum, gömlum húsum og bragðgóðum götumati.

  • Innifalið: Morgunverður og kvöldverður. 

Dagur 4, miðvikudagur, 4. nóvember 2026 — Kínamúrinn, Sumarhöllin og Ólympíuþorpið

Eftir morgunverð höldum við að Kínamúrnum við Juyong-hliðið, einn frægasta hluta múrsins í fallegu fjallalandslagi. Þar gefst tækifæri til að ganga eftir múrnum og njóta stórbrotins útsýnis.

Eftir heimsóknina kynnumst við kínverskri perluframleiðslu. Síðdegis heimsækjum við Sumarhöllina, sumarleyfisstað keisarafjölskyldunnar, með fallega garða við Kunming-vatn. Á leiðinni til baka stoppum við við Ólympíuþorpið frá árinu 2008.

Á meðan á dvölinni stendur er stefnt að heimsókn í íslenska sendiráðið í Peking.

  • Innifalið: Morgunverður og kvöldverður.

Dagur 5, fimmtudagur, 5. nóvember 2026 — Peking → Shanghai með hraðlesti

Eftir morgunverð kveðjum við Peking og höldum á járnbrautarstöð fyrir hraðlest til Shanghai (um það bil 4,5 klst.). Við komuna blasir við nýr heimur skýjakljúfa og alþjóðlegrar stemningar. Shanghai er ein stærsta og nútímalegasta borg Asíu.

Í ferð okkar um borgina sjáum við hina frægu strandgötu Bund, glæsilega turna í Pudong-hverfinu og notaleg gömul hverfi með hefðbundnum byggingum.

  • Innifalið: Morgunverður og kvöldverður.

Dagur 6, föstudagur, 6. nóvember 2026 — Skoðunarferð um Shanghai

Ferðin hefst með heimsókn í Jade Buddha-musteri, þar sem dýrmætar Búddastyttur úr jade og rólegt andrúmsloft gefa innsýn í trúarhefðir Kína. Þaðan er haldið í Yu-garð, einn fegursti klassíski garðurinn í borginni.

Í ferðinni er einnig komið við í silkiverksmiðju og rölt um Nanjing-götu, frægustu verslunargötu Asíu. Seinni part dags heimsækjum við Bund og Oriental Pearl-turninn, þar sem útsýni yfir stórborgina er einstakt.

  • Innifalið: Morgunverður og kvöldverður.

Dagur 7, laugardagur, 7. nóvember 2026 — Shanghai og Zhujiajiao

Dagsferð til Zhujiajiao, forns vatnabæjar með þúsund ára sögu, oft kallaðs „Feneyjar Shanghai" vegna síkja og steinbrúa. Gestir geta gengið um þröng stræti, skoðað litlar verslanir og notið rólegs andrúmslofts.

Eftir heimsóknina er haldið aftur til Shanghai þar sem stoppað er í AP Plaza, vinsæll verslunarstaður þar sem hægt er að prútta um verð.

  • Innifalið: Morgunverður og kvöldverður.

Dagur 8, sunnudagur, 8. nóvember 2026 — Shanghai → Xi'an með hraðlesti

Ferðin frá Shanghai til Xi'an með hraðlesti er þægileg upplifun (um það bil 5,5–6 klst.). Á leiðinni má sjá fjölbreytt landslag, sveitir og fjöll áður en komið er til Xi'an, einnar elstu borgar Kína.

Við komuna er farið að skoða Ancient City Wall, einn best varðveitta borgarmúrinn. Gestir geta gengið eða hjólað á honum. Eftir það er haldið í Muslim Quarter, líflegt hverfi þar sem kínversk og múslimsk menning blandast í þröngum götum fullum af götumati.

  • Innifalið: Morgunverður og kvöldverður.

Dagur 9, mánudagur, 9. nóvember 2026 — Xi'an og Terracotta-hermennirnir

Dagsferð til Xi'an býður upp á einstaka blöndu af sögu og menningu. Borgin var upphafspunktur Silkivegarins.

Ferðin hefst að morgni með heimsókn að Terracotta-hermönnunum, þar sem þúsundir leirhermanna standa vörð um grafhýsi fyrsta keisara. Þetta er talinn einn merkasti fornleifafundur heims. Eftir heimsóknina er haldið til miðborgarinnar þar sem gengið er um sögulegt hverfi með litríkum mörkuðum.

  • Innifalið: Morgunverður og kvöldverður.

Dagur 10, þriðjudagur, 10. nóvember 2026 — Xi'an → Guilin með flugi

Eftir morgunverð er haldið á flugvöll fyrir flug til Guilin. Þar tekur leiðsögumaður á móti okkur og heimsókn hefst að Fílsbótshæðinni, þekktasta kennileiti borgarinnar sem minnir á fíl að drekka vatn.

Að því loknu er haldið að Reyrflautuhellinum, glæsilegum dropasteinshelli oft kallað „Listahöll náttúrunnar" vegna litadýrðar og klettamyndana.

  • Innifalið: Morgunverður og kvöldverður.

Dagur 11, miðvikudagur, 11. nóvember 2026 — Sigling á Li-á og Yangshuo

Eftir morgunverð förum við í siglingu á Li-á, ein fegursta ferðaupplifun í Kína. Siglt er fram hjá grænum hrísgrjónarökrum og einstökum kalksteinsfjöllum sem rísa dramatískt upp úr landslaginu.

Við komuna til Yangshuo gefst frjáls tími til að skoða bæinn, þekktan fyrir líflega markaði og notaleg kaffihús. Eftir viðdvölina er haldið til baka síðdegis.

  • Innifalið: Morgunverður og kvöldverður.

Dagur 12, fimmtudagur, 12. nóvember 2026 — Guilin → Hong Kong með hraðlesti

Hraðlestin til Hong Kong (um það bil 3 klst.) markar upphaf dvalar í einni líflegustu stórborg Asíu. Við komu er farið á hótel (innritun frá kl. 15:00).

Um kvöldið er farið í kvöldferð: fyrst upp á Viktoríutopp með Peak Tram-kláfferju, stopp við klukkuturninn, ganga um Avenue of Stars, og kvöldið lýkur á Konumarkaðnum, vinsælum næturmarkaði.

  • Innifalið: Morgunverður og kvöldverður.

Dagur 13, föstudagur, 13. nóvember 2026 — Hong Kong – Makaó – Hong Kong

Dagsferð til Makaó með ferju, þar sem austurlensk og evrópsk menning blandast. Heimsótt eru rústir St. Paul's, A-Ma-hofið og Senado-torgið með portúgölskum byggingum. Á leiðinni er stoppað við Makaó-turninn. Síðar er heimsótt The Venetian Macao með síkjum og gondólum. Ferja til baka.

  • Innifalið: Morgunverður og kvöldverður.

Dagur 14, laugardagur, 14. nóvember 2026 — Hong Kong

Dagsferð hefst við Repulse Bay, fallegustu strönd borgarinnar, og síðan til Aberdeen, gamals fiskimannahverfis með fljótandi húsum. Næst er Stanley-markaðurinn með handverki og minjagripum. Síðdegis er West Kowloon heimsótt, þar sem Hong Kong Palace Museum sýnir dýrmæta gripi úr keisarasögu Kína.

  • Innifalið: Morgunverður og kvöldverður.

Dagur 15, sunnudagur, 15. nóvember 2026 — Brottför frá Hong Kong

Morgunverðarbox, útritun og ferð á flugvöll. Flogið með Air China CA118 kl. 08:30 til Peking (lent kl. 11:50). Áframflug CA877 kl. 13:00 til Kaupmannahafnar (lent kl. 16:00). Að lokum Icelandair kl. 17:05 til Keflavík (lent kl. 19:30).

  • Innifalið: Morgunverður (morgunverðarbox).

Vinsamlegast kynnið ykkur almennar skilmála okkar á skilmalar.fitravel.net