La Gomera Golf
Úrval Útsýn býður upp á glæsilega golfferð til La Gomera. Spilað verður á hinum stórbrotna Tecina golfvelli, 18 holu meistaramótsvelli með einstöku útsýni yfir Atlantshafið og Tenerife.
Jörundur Guðmundsson fararstjóri er fæddur á Akureyri en býr nú í Hafnarfirði og á Jótlandi og er þar í Holsterbru golfklúbbi. Jörundur, hafði forgöngu um stofnun GVS, ásamt Andrés Guðmundssyni, var fyrsti formaður GVS og var í stjórn þar í tólf ár. Hann er núna meðlimur í Keili og hefur spilað golf víða um heim, t.d. á La Gomera þar sem hann bjó í tæp þrjú ár. Jörundur er með 13,5 í forgjöf.
Innifalið í verði
- Beint flug fram og til baka
- Flugvallagjöld og skattar
- Flutningur á golfsetti
- Ferðataska og handfarangur
- 7 nætur á Hotel Jardín Tecina 4★ með hálfu fæði
- Íslensk fararstjórn
- 6 golfhringir á Tecina Golf
- Sigling frá Tenerife yfir til La Gomera og til baka
Ferðalýsing
La Gomera er kyrrlát og náttúrufögur eyja sem býður upp á frábærar aðstæður til golfiðkunar, notalegt loftslag og afslappað andrúmsloft – fullkomin blanda af golfi, sól og slökun.
Golf, náttúrufegurð og kyrrð Kanaríeyja
Upplifiðu einstaka golf- og sæluferð til La Gomera, einnar fallegustu og óspilltustu eyju Kanaríeyja. Dagana 23.–30. september 2026 býður Úrval Útsýn upp á vandaða golfferð þar sem dvalið er í einstöku umhverfi og spilað á hinum glæsilega Tecina golfvelli með útsýni yfir Atlantshafið og nágrannaeyjuna Tenerife.
Tecina Golf – einstök upplifun
Tecina golfvöllurinn er 18 holu meistaramótsvöllur hannaður af Donald Steel og þykir einn sá fallegasti á Kanaríeyjum. Völlurinn er byggður í hlíðum ofan við sjóinn þar sem allar brautir liggja niður á við – sem gerir leikinn bæði áhugaverðan og skemmtilegan. Stórbrotið útsýni yfir hafið, Teide-fjall á Tenerife og gróskumikla dali La Gomera skapar umgjörð sem fáir golfvellir jafnast á við.
Gisting í fyrsta flokks umhverfi
Dvalið er á Hotel Jardín Tecina, glæsilegu 4 stjörnu hóteli staðsettu ofan við golfvöllinn. Hótelið er þekkt fyrir góða þjónustu, fallega garða, fjölbreytta veitingastaði og rólegt andrúmsloft – fullkomið til að slaka á eftir daginn á vellinum.
Athugið
- Ef lágmarksþátttaka næst ekki áskilur ferðaskrifstofan sér rétt til að aflýsa ferðinni.
- Staðfestingargjaldið er 100.000 kr. og er óafturkræft. Vinsamlegast athugið hvort afbókunartrygging fylgir kreditkorti ykkar og/eða heimilistryggingu.
- Ferðastjóri/leiðsögumaður áskilur sér rétt til að breyta ferðaáætlun ef veður, umferð eða aðrar ófyrirséðar aðstæður valda því.
- Mikilvægt er að nöfnin á bókunum passi við nöfnin í vegabréfinu. Það er á ábyrgð farþegans ef svo er ekki.