Aðventa í Kaupmannahöfn: Jólaljós, saga og samvera
Upplifðu jólaborgina Kaupmannahöfn í allri sinni dýrð þar sem ljósadýrð, jólamarkaðir og ristaðar möndlur skapa ógleymanlega stemningu. Í þessari ferð leiðir Kristín A. Árnadóttir, fyrrverandi sendiherra, hópinn um söguslóðir borgarinnar.
Kristín A. Árnadóttir
Fararstjóri
Hvað er betra en að hefja aðventuna á því að skella sér í helgarferð til Kaupmannahafnar, heimsækja hið einstaka Tívolí í jólabúning og kaupa nokkrar jólagjafir á jólamarkaðnum á Kongens Nytorv? Jólaljós og ótal markaðir mæta gestum á hverju götuhorni og enginn verður svikinn af þessari heimsókn þar sem angandi ilmur af greni og jólaglöggi skapa sannkallaða aðventustemningu.
Gist er á hinu sjarmerandi 4 stjörnu hóteli Copenhagen Strand sem er staðsett í hjarta borgarinnar í sögulegu vöruhúsi frá 1869. Hótelið er þekkt fyrir hlýlegt andrúmsloft og klassíska norræna hönnun, steinsnar frá iðandi mannlífi Nýhafnar.

Dagskrá
Dagur 1, föstudagur, 4. desember 2026 — Koma til Kaupmannahafnar
Flogið er með Icelandair til Kaupmannahafnar kl 07:35 og lent 11:45. Rúta keyrir hópinn á hótel Copenhagen Strand. Frjáls dagur til að slaka á, fara í gönguferð eða skella sér í jóla-Tívolí. Hópurinn borðar saman 3ja rétta kvöldverð á sérvöldum stað.
Dagur 2, laugardagur, 5. desember 2026 — Söguganga og sigling
Eftir morgunverð förum við í 2,5 tíma sögugöngu um Kaupmannahöfn í fylgd fararstjóra. Eftir gönguna siglum við um síki borgarinnar. Frjáls tími fram að kvöldmat en þá borðar hópurinn saman 3ja rétta kvöldverð.
Dagur 3, sunnudagur, 6. desember 2026 — Frjáls dagur eða Esrum-klaustrið
Frjáls dagur í borginni eða valfrjáls skoðunarferð á jólamarkaðinn í Esrum-klaustri á Norður-Sjálandi. Þar iðar allt af mannlífi, handverki og jólaljósum í sögufrægu umhverfi – sannkölluð veisla fyrir augað.
Dagur 4, mánudagur, 7. desember 2026 — Heimferð
Eftir morgunverð flytur rúta hópinn á flugvöllinn. Flogið er með Icelandair (FI205) kl. 12:55 og lent í Keflavík kl. 15:10 að staðartíma.