Split-saga, strönd og líflegt borgarlíf
Split er ein af líflegustu borgum Króatíu og sameinar sögu, menningu, strönd og frábært mannlíf. Borgin er byggð í kringum einstaka rómverska arfleifð og býður upp á blöndu af sögulegum byggingum, fallegu strandlífi og nútímalegri borgarstemmningu.
Höll Diocletianusar
Höll Diocletianusar er hjarta Split og eitt merkasta rómverska mannvirki Evrópu. Þar er hægt að ganga um gömul steinhvelfing, torg og þröngar götur sem mynda lifandi hluta af gamla bænum.
Riva Promenade
Riva göngusvæðið er miðpunktur mannlífs í Split. Þar er tilvalið að rölta meðfram sjónum, setjast á kaffihús, njóta veitingastaða og fylgjast með lífinu í borginni bæði dag og kvöld.
Marjan hæð
Marjan hæðin er grænt útivistarsvæði rétt við borgina með frábæru útsýni yfir Split og Adríahafið. Þar eru gönguleiðir, hjólastígar og rólegt umhverfi fyrir þá sem vilja komast í náttúru.
Bačvice strönd
Bačvice er vinsælasta strönd Split og hentar vel til sólbaðs og sunds með lifandi strandstemningu yfir sumartímann.
Matur og matarupplifun
Split er þekkt fyrir framúrskarandi sjávarrétti og dalmatíska matargerð með ferskum fiski og hefðbundnum réttum svæðisins.
Gamli bærinn
Gamli bærinn í Split er fullur af þröngum götum, litlum torgum og sögulegum byggingum. Þar er tilvalið að rölta um og uppgötva kaffihús, verslanir og stemningu.
Split er einnig frábær útgangspunktur fyrir ferðir til eyjanna Hvar, Brač og Vis sem eru þekktar fyrir fallegar strendur og líflegt næturlíf.
Klis virkið
Klis virkið stendur fyrir ofan borgina og býður upp á stórkostlegt útsýni yfir Split og nærliggjandi svæði. Það er einnig þekkt sem tökustaður Game of Thrones.
Pazar markaðurinn
Pazar markaðurinn er líflegur útimarkaður þar sem hægt er að kaupa ferskar afurðir og upplifa daglegt líf í borginni.
Mikilvægar upplýsingar um samgöngur í SplitVinsamlegast athugið að ekki er fararstjóri á okkar vegum í Split og því mikilvægt að kynna sér samgöngur fyrir brottför:
- Gisting í Split: Þægilegast og hagkvæmast er að taka almenningsvagn frá flugvellinum eða nýta leigubílaþjónustu sem er í boði beint fyrir utan flugstöðina.
- Gisting á Makarska: Almenningssamgöngur ganga ekki beint frá flugvelli til Makarska. Í boði er að bóka sameiginlegan flugvallarakstur (shuttle service) eða einkaakstur.
- Ferjur til Hvar og Brač: Siglt er frá höfninni í Split. Í boði eru hraðskreiðar katamarangferjur sem og hefðbundnar ferjur sem ganga reglulega á milli eyjanna.
ATH: Ferjur geta selst upp á vinsælustu ferðadögunum yfir sumartímann. Við mælum eindregið með að bóka miða tímanlega á www.ferryhopper.com til að tryggja ykkur pláss (athugið sveigjanleika í bókunum).